Um Valda&Frey
Valdi&Freyr bjóða farsímaþjónustu fyrir ungt fólk kostaða af auglýsendum. Mánaðarlega fá fjelagar Valda&Freys 1.000 kr inneign í boði auglýsenda. Í staðinn fá auglýsendur að senda viðskiptavinunum auglýsingar beint í símann í formi MMS/SMS.
Talsímafjelagi Valda&Freys er ætlað að mæta þörfum ungs fólks á fjarskiptamarkaði í dag. Þjónusta fjelagsins hefur þess vegna verið þróuð í náinni samvinnu við ungt fólk, því það er enginn betri til að segja hvað ungu fólki finnst flott og hvernig þjónusta hentar þeim en þau sjálf. Viðskiptavinir munu halda áfram að hafa áhrif á alla þætti fjelagsins, þá sérstaklega kynningu fjelagsins.
Fjelagið býður upp á einfalda og ódýra frelsisþjónustu fyrir ungt fólk. Öll starfsemi og þjónusta fer fram á netinu.
Valdi&Freyr eru í eigu Fjarskipta ehf.
Fjarskipti ehf.
Skútuvogi 2
104 Reykjavík
Ísland
Kt. 4709051740
www.valdiogfreyr.is
valdiogfreyr@valdiogfreyr.is
