Skilmálar
Með virkjun símkortsins samþykkir notandinn að fara eftir eftirfarandi skilmálum:
Gildistími og inneignir
Inneign í boði auglýsenda
Inneignir í boði auglýsenda gilda í 30 daga frá því þær eru afhentar. Eftir 30 daga fyrnist inneignin, ef einhver er og ný bætist við. Inneignir og ávinninga tilboða er ekki hægt að færa á milli númera. Ef númerinu er sagt upp eða það flutt frá Valda&Frey fyrnast allar inneignir og ávinningar.
Almennar inneignir
Hægt er að fylla á frelsið beint úr símanum með greiðslukorti, í heimabönkum eða á vef Valda&Freys.
Almennar inneignir eru virkar í 90 daga.
Þjónustan
Ef engar áfyllingar eða notkun hefur verið á númerinu áfyllingar í 9 mánuði áskilja Valdi&Freyr sér þann rétt að endurheimta símanúmerið og endurúthluta því.
Innifalin símtöl milli viðskiptavina Valda&Freys
Innifalin símtöl milli viðskiptavina Valda&Freys á aðeins við um notkun innanlands, ávallt er sérstaklega greitt fyrir notkun erlendis.
Notkun í útlöndum
Hægt er að nota Frelsið í flestum þeim löndum sem Íslendingar ferðast til. Valdi&Freyr eru í samstarfi við Vodafone um símtöl fjelaga þeirra á ferðalögum erlendis. Fjelagar Valda&Freys njóta því þeirra samninga sem Vodafone, í krafti stærðar sinnar, nær á erlendri grundu. Upplýsingar um í hvaða löndum er hægt að nota Frelsið er að finna á síðu Vodafone. Í þessum löndum eru símtöl gjaldfærð um leið og þau eiga sér stað.
Það er á ábyrgð notanda að kynna sér verðskrá og hvort hægt sé að nota Frelsið í þeim löndum sem notandi ferðast til.
Verði til skuld hjá viðskiptavini í frelsisþjónustu vegna notkunar erlendis er Valda&Frey heimilt að krefjast greiðslu eftir á með því að skuldajafna inneign viðskiptavinar á móti skuldinni. Ef inneignin dugar ekki, er sendur greiðsluseðill fyrir eftirstöðvum skuldarinnar.
Kynningar og tilboð frá þriðja aðila
Viðskiptavinir Valda&Freys samþykkja að fá kynningar og tilboð send frá þriðja aðila gegn mánaðarlegri inneign. Hámarksfjöldi þessara sendinga er 90 sendingar á mánuði og aldrei meira 5 sendingar einn og sama daginn.
Upplýsingar um einstaka viðskiptavini eða persónugreinanlegar upplýsingar verða aldrei afhentar þriðja aðila.
Almenn þjónusta
Valdi&Freyr bera ekki ábyrgð á tjóni, hvorki beinu né óbeinu, sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna innihalds- eða niðritíma þjónustunnar.
Valdi&Freyr hafa ekki eftirlit með eða bera ábyrgð á innihaldi efnis sem sótt er á Internetið. Öll notkun, framleiðsla og vinnsla með efni sem fengið er af Internetinu er á ábyrgð viðskiptavinar. Að öðru leyti vísast til almennra skilmála Vodafone um fjarskiptaþjónustu.
Ef í ljós kemur að notkun felur í sér misnotkun á búnaði eða þjónustu Valda&Freys áskilja þeir sér rétt til að synja viðskiptavini um þjónustu, ýmist um stundarsakir eða til frambúðar.
Uppsögn
Báðir aðilar geta sagt upp þjónustunni. Viðskiptavinur fær ekki inneignir í boði auglýsenda endurgreiddar við uppsögn.
Allar breytingar á skilmálum eru tilkynntar með 30 daga fyrirvara.
Talsímafjelag Valda&Freys er í eigu Fjarskipta ehf.