Spurt og svarað

 

Nýir fjelagar
 
Hvað tekur langan tíma að skipta yfir til Valda&Freys?
Númeraflutningar taka 3-5 virka daga. Í millitíðinni sendum við þér símkort sem þú skiptir út þegar við sendum þér SMS.
Mundu að númerið þarf að vera skráð á þína kennitölu svo þú getir flutt það.

Þarf ég að fá mér nýtt númer ef ég vil koma til Valda&Freys?
Nei þú getur flutt þitt númer yfir
 

Inneignir og tilboð
Hvað þarf ég að gera til að fá mánaðarlega 1000 kr inneign?
Bara koma yfir til Valda&Freys. Í staðinn fyrir að gefa þér inneign í hverjum mánuði fá auglýsendur að senda þér kynningar og tilboð í símann þinn.

Hvað gilda inneignir lengi?
Mánaðarleg inneign í boði auglýsenda gildir í mánuð í senn. Aðrar áfyllingar gilda í 90 daga.

Eru ekki frí SMS innan kerfis?
Það eru innifaldar 1.000 mínútur innan kerfis en öll skilaboð (SMS/MMS) kosta 4,9 kr. Við stilltum frekar verðinu í lágmark þ.a. að öll skilaboð væru á kostnaðarverði heldur en að sum kostuðu ekkert en önnur væru dýr. Þessi ósk kom frá hópi af ungu fólki sem tók þátt í að móta félagið með okkur.

Hvernig get ég keypt inneign?
Best er að skrá sig í Hraðáfyllingu. Þar geturðu notað bæði debet eða kreditkort og þarft bara að skrá kortið einu sinni.
Þú getur líka keypt inneign með kreditkorti á síðunni okkar og í heimabönkum Arion banka og Íslandsbanka. Enn sem komi er er ekki hægt að kaupa inneignir í heimabönkum Landsbankans og Sparisjóðanna.
 

Þjónusta
 Af hverju eru Valdi&Freyr ekki með þjónustuver?
Valdi&Freyr eru ekki með þjónustuver í síma. Öll þjónusta fer fram á vefnum, bæði á Mínum síðum og í gegnum tölvupóst, valdiogfreyr@valdiogfreyr.is. Það er með þessum hætti sem við náum að bjóða hagstæðari kjör.

Eru viðskiptavinir Valda&Freys með talhólf?
Nei, viðskiptavinir Valda&Freys eru ekki með talhólf. Allir eru hins vegar með þjónustuna Hver hringdi sem er þjónusta sem kemur í staðinn fyrir talhólf en hefur mun fleiri kosti en talhólf. 

Ef einhver hringir í þig þegar slökkt er á símanum þínum eða hann utan þjónustusvæðis færðu SMS næst þegar þú kveikir á honum um hver reyndi að hringja í þig. Þessi þjónusta kostar ekkert, hvorki á Íslandi eða erlendis.

Ég get ekki hringt myndsímtal, hvað er að?
Til að þú getir hringt myndsímtal þarf síminn þinn að vera tengdur 3G kerfi og sá sem þú ert að reyna að hringja í þarf að vera með síma sem styður myndsímtöl og tengdur 3G kerfi. Líklegast er sá sem þú ert að reyna að hringja í ekki tengdur 3G kerfi.


hagstæðari kjöNetið í símann
Hvað kostar að fara á netið?
Þú borgar 25 kr/dag, innifalin eru 5 MB. Ef þú ferð umfram 5 MB rukkast annað daggjald og þú færð ný 5 MB.

Ég kemst ekki á netið í símanum mínum en á næga inneign, hvað er að?
Ertu viss um að þú sért með réttar stillingar í símanum? þú getur sótt réttar stillingar hér. Stundum þarf að eyða gömlum stillingum og velja V&F stillingarnar í valmynd símans.
Ef stillingarnar eru réttar skaltu senda okkur póst á valdiogfreyr@valdiogfreyr.is og við skoðum málið fyrir þig.


Nýja símkortið virkar ekki - lausnir
Prufaðu fyrst af öllu að taka símkortið úr símanum og setja það aftur í, passa þarf að símkortið snúi rétt og sé vel skorðað.

Ertu að flytja númerið frá öðru fyrirtæki?
Ekki setja nýja kortið í símann fyrr en þú færð SMS um að númerið þitt sé að fara að flytjast til Valda&Freys og gamla kortið er hætt að virka.

Virkar kortið í öðrum símum?
Ef já, er vandamálið tengt símanum þínum ekki kortinu.

Oft er um læsta síma að ræða, þ.e.a.s. að eingöngu sé hægt að nota símkort frá ákveðnu símfyrirtæki í honum. Hafðu samband við fyrirtækið sem þú keyptir símann hjá og óskaðu eftir því að síminn sé opnaður.

Biður síminn um öryggisnúmer?
Sumir símar biðja um öryggisnúmer þegar skipt er um símkort. Öryggisnúmer er 12345 í Nokia ef því hefur ekki verið breytt.

Varstu að panta nýtt símkort af því þú týndir símanum og þurftir að loka fyrir símann?
Þá þarftu að passa að opna aftur fyrir símann á Mínum síðum.

Ef ekkert af þessu leysir vandamálið skaltu senda okkur póst á valdiogfreyr@valdiogfreyr.is og við kíkjum á málið.

Valdi og Freyr á Facebook